Aðdragandi, hegðun og viðbrögð skráð. Forráðamaður látinn vita.
Vaktaskipti
Hver vakt byrjar á sömu mynd: atvik frá síðustu vöktum, ógefin lyf og nýjustu færslur. Starfsmaður staðfestir að hann hafi lesið og tekur við.
Hugbúnaður fyrir velferðarþjónustu
Tento smíðar hugbúnað fyrir búsetuúrræði og velferðarþjónustu. Fyrsta varan okkar, Hörður, heldur utan um vaktaskipti, dagbók, lyfjagjöf og atvik. Hver færsla er dulkóðuð, rekjanleg og verður aldrei þurrkuð út.
Hörður er spjaldtölva á vaktinni. Starfsfólk skráir sig inn með rafrænum skilríkjum, tekur við vaktinni, skráir dagbók og atvik í fáum skrefum og sér strax hvað þarf að gera. Stjórnendur fá yfirsýn yfir öll úrræði og dagskýrslu frá hverju heimili.
Hver vakt byrjar á sömu mynd: atvik frá síðustu vöktum, ógefin lyf og nýjustu færslur. Starfsmaður staðfestir að hann hafi lesið og tekur við.
Líðan, svefn, rútína, nám og félagsleg virkni, eitt skref í einu. Fljótlegt á milli verka og eins uppsett hjá öllum.
Aðdragandi, hegðun og afleiðing, alvarleiki, inngrip og hverjir voru látnir vita. Atvik birtast á næstu vaktaskiptum.
Lyf eftir tímaáætlun. Gefið, neitað eða sleppt, skráð á þann sem gaf og hvenær. Ógefin lyf sjást strax.
Engu er breytt eða eytt. Leiðrétting er ný færsla með ástæðu, og upprunalegi textinn stendur áfram við hliðina.
Stjórn sér öll úrræði á einum stað og fær dagskýrslu frá hverju heimili: dagbók, atvik, lyf og hvort tekið var við öllum vöktum.
Öryggi og persónuvernd
Upplýsingar um börn og fatlað fólk eru viðkvæmar persónuupplýsingar. Hörður er hannaður út frá því, ekki lagaður að því eftir á.
Færslur, nöfn, lyf og aðgangsskrá eru dulkóðuð með AES-256-GCM áður en þau fara í gagnagrunn. Afrit sýnir aðeins dulkóðaðan texta.
Hver færsla er keðjuð við þá fyrri með fingrafari. Ef einhver breytir gögnum framhjá kerfinu kemur það í ljós, á nákvæmlega þeirri færslu.
Innskráning með rafrænum skilríkjum, og aðeins þau sem stjórnandi hefur skráð komast inn. Kennitala er aldrei geymd í heild.
Skráð er hver skoðaði hvað, hvenær og á hvaða tæki. Persónuverndarfulltrúi getur farið yfir það hvenær sem er.
Hver viðskiptavinur fær eigin gagnagrunn og eigin dulkóðunarlykil. Gögn eins blandast aldrei gögnum annars.
Sjálfvirk útskráning, vatnsmerki með nafni og tíma á skjánum, og stuðningur við læsta spjaldtölvu sem keyrir aðeins Hörð.
Hvernig byrjum við
Þið þurfið enga netþjóna og engan tölvumann. Tento rekur kerfið; þið setjið upp ykkar úrræði og ykkar fólk.
Við förum yfir starfsemina með ykkur og gerum vinnslusamning um persónuupplýsingar.
Þið fáið eigið vistfang og uppsetningarkóða. Stjórn setur upp úrræði, vaktir og einingar.
Deildarstjórar skrá starfsfólk með kennitölu og þau sem fá þjónustu, ásamt lyfjum.
Starfsfólk skráir sig inn á spjaldtölvunni með rafrænum skilríkjum og byrjar að skrá.
Um Tento
Tento smíðar hugbúnað fyrir velferðarþjónustu. Við byrjum þar sem þörfin er mest: í búsetuúrræðum, þar sem starfsfólk skiptist á vöktum og skráningin þarf að vera bæði fljótleg og áreiðanleg.
Hörður er fyrsta varan okkar. Hann var hannaður með einföldu markmiði: að starfsfólk eyði minni tíma í skráningu og meiri tíma með fólkinu, og að ekkert sem skráð er glatist eða breytist.
Við sýnum ykkur kerfið á ykkar forsendum og förum yfir hvernig það passar við ykkar starfsemi.